7/27/2006

ARE YOU READY TO JUMP?!

Ég er farinn til London að hitta vinkonu mína, Madonnu. Hún biður örugglega að heilsa ykkur öllum í góða veðrinu.

Sjáumst! :D

7/06/2006

Paris Hilton er blind

Ég hef ekkert sérstakt á móti Paris Hilton. Reyndar finnst mér hún skemmtilegur karakter og var því ekkert óspenntur að heyra nýju smáskífuna hennar, Stars Are Blind, sem er undanfari væntanlegrar plötu með dömunni.

En nei, hún Paris er ekki alveg að gera sig sem söngkona. Hæfileikar hennar á því sviði eru svipaðir og leikhæfileikar hennar: hún stendur sig ekkert illa en hún er afskaplega dauf og ómerkileg. Svo hjálpar það ekki að lagið virðist vera 80% stolið frá gömlu UB40 lagi sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Myndbandinu tekst meira að segja að gera frk. Hilton ljóta og ömurlega. Count me unimpressed.

Ég ætla ekki að kaupa diskinn hennar Parísar. En ég ætla að downloada honum. :)

7/04/2006

Svínasúpan

Það eina fyndna við þennan þátt er að fólk fær borgað fyrir að gera hann.