12/05/2006

Það er svo merkilegt

Það er svo merkilegt hvað heimalærdómur - og þá sérstaklega ritgerðarskrif - getur verið furðulegur hlutur. Í dag, til dæmis, hef ég verið að basla við að setja saman ritgerð um hryllingsmyndir á fræðilegum nótum (já, það er hægt). Stærstur hluti dagsins fór í það að vorkenna sjálfum mér fyrir þessi örlög. Ég vissi ekkert hvað ég átti að skrifa, hvar ég átti að byrja eða hvar ég myndi enda.

En stundum gerast kraftaverkin. Ég byrjaði bara að skrifa og viti menn, nokkrum tímum síðar er ég kominn með miklu meira en nóg efni - búinn með tíu blaðsíður (af tíu mögulegum) nú þegar, ekki byrjaður á inngangi eða lokaorðum, og á margt eftir að segja! Vandamálið verður að stytta þetta, ef eitthvað er. Og það besta er að þetta er allt nothæft, áhugavert (finnst mér) og skemmtilegt! Það er svo gaman þegar maður sleppir sér við skriftir og uppgötvar hluti sem maður hafði ekki einu sinni pælt sjálfur í. Núna sé ég t.d. myndir á borð við Friday the 13th og Carrie fyrir mér í allt öðru ljósi en fyrr í dag. Þetta bara fór allt að meika sens, eins og maður segir á góðri íslensku.

Og þetta er í raun og veru allt honum Arnaud að þakka, því ef hann hefði ekki vakið mig kl. 9 í morgun, þá væri ég örugglega ennþá sofandi núna ... Merci, Arnaud!

Núna virðast næstu tvær ritgerðir ekki eins hræðilegar! :D

7 Comments:

At 12:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hóóóóra! ég er að hata að það sé auðvelt fyrir e-n að skrifa ritgerð! það er óásættanlegt!

 
At 9:17 f.h., Blogger Lingur said...

Andinn kom bara yfir mig, svo þetta var í raun og veru ekki mér að kenna/þakka. Þetta bara gerðist.

 
At 5:21 e.h., Blogger Baldvin Kári said...

Til hamykju, Lingur!

 
At 10:26 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég prófaði að kommenta, það gekk alveg :( þarf bara að láta nafn og tvisvar email...
en ég skal alveg fá að láni eh af þessum ritgerðaranda, er að strögglast fram og til baka með helv. flugdrekahlauparann á hælunum á mér.
Ertu ekki með sömu bók?
msn: gudrunpalsd@hotmail.com

 
At 7:37 e.h., Blogger Atli Sig said...

Í hvaða ljósi sérðu þessar myndir nákvæmlega?

 
At 11:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hurðu hér er þetta: blog.central.is/pheeebs

og ég er búin að adda þér á msnið mitt.
sé þig líkalegast á þriðjudag :)

 
At 11:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

nei bara grín! blog.central.is/pheebs en ekki pheeebs .. hehe..smá laugardagskvöldshúmor

 

Skrifa ummæli

<< Home