10/10/2006

Mig langar að sjá ...

Þessar tvær heimildamyndir:

Shut Up and Sing - sem fjallar um amerísku hljómsveitina Dixie Chicks og þau hrikalegu viðbrögð sem hún fékk eftir að hafa dirfst að tala á móti George Bush og Íraksstríðinu opinberlega. Ég hef aldrei beint hlustað á stelpurnar í Dixie Chicks, enda er ég ekkert sérstaklega fyrir kántrýtónlist, en þessi mynd virðist mjög áhugaverð. Trailerinn sýnir okkur a.m.k. hversu ótrúlega langt sumir ameríkanar geta gengið í hatri sínu á einhverjum sem þeir eru ekki sammála. Alveg ótrúlegt.

Ég held alfarið með Dixie Chicks stelpunum. Þær sungu "Landslide" eftir Stevie Nicks á mjög flottan hátt og hafa spilað með Sheryl Crow, sem ég hef alltaf haldið mikið upp á. Hlakka til að sjá þessa mynd. Svo er hún gerð af tvöfalda óskarsverðlaunahafanum Barböru Kopple (who she?!) svo þetta ætti allt að vera í fínasta lagi.

Jesus Camp - Úff. Ég er alveg viss um að þessi mynd eigi eftir að vekja álíka viðbrögð og Bowling For Columbine eða Fahrenheit 911. Hérna var kvikmyndagerðarmönnum gefið fullt leyfi til að fylgjast með "búðum" fyrir kristin börn (í Ameríku, where else) þar sem þeim er kennt að vera hermenn guðs og eru látin tilbiðja pappaspjald með mynd af George einum Bush. Ennfremur falla þau til jarðar í trúarlegu losti, gráta trúarlegum tárum og eru að frelsast hingað og þangað. Alveg niður í fimm ára krakka.

Brjálaða konan sem stendur fyrir þessu er svo rugluð að hún er að taka Gunnar-í-Krossinum á þetta allt saman og hjálpar til við að auglýsa myndina, því all-publicity-is-good-publicity. Þetta er örugglega rétt hjá henni þegar litið er á "heildarmyndina", því ég vona að þessi mynd fletti ofan af því hversu brjálaðir ameríkanar geta verið þegar kemur að svona málum. Kannski verður einhver breyting á, líklegast ekki.

3 Comments:

At 2:03 f.h., Blogger Atli Sig said...

Mér þætti samt áhugavert að vita hvort það sé ekki hægt að finna álíka rugludalla. Við vitum að það fullt af svona geðveiku liði í USA en maður heyrir næstum aldrei af álíka liði í öðrum löndum nema bara e-ð extreme dæmi eins og N-Kórea. En mér þætti áhugavert að sjá heimildarmynd um svona fólk í t.d. Svíþjóð eða Hollandi eða Sviss eða e-u álíka "líbó" landi. Kleppur er alls staðar!

 
At 2:04 f.h., Blogger Atli Sig said...

Hmm vantar "...í öðrum löndum" í endann á fyrstu setningunni.

 
At 12:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

downloadaðu henni og horfum svo á hana saman!
ást

 

Skrifa ummæli

<< Home